Hvar og hvenær ?
Hotel Natura – bíósalurinn 18.sept 2025 kl. 16:00 – 18:00
Verð : 10.000 fyrir félagsmenn og 17.000 fyrir utanfélagsmenn
Markmiðið er að reyna draga saman þekkingu á launakerfum og þeim tólum og tækjum sem við fagaðilar notum við launaútreikninga.
Hugmyndir um það sem tekið verður fyrir.
Mánaðarlaun, tímalaun, hvernig reiknum við orlofsdaga, hvernig höldum við utan um veikindarétt, fritökurétt, Launakerfi, timaskráningarkerfi, verkbókhald, gátlistar.
Pallborð:
Launasérfræðingar nokkurra bókhaldsstofa og launadeilda
Þeir sem tilkynnt hafa þátttöku er: Skattur og bókhald, Fastland, Húnabókhald
Stutt erindi verða, sem nýtast sem hugmyndir að umræðuefni.
Þátttakendur : Fagaðilar í fagfélagi bókara og bókhaldsstofa, Félag viðurkenndra bókara, Félag löggiltra endurskoðenda, Félag innri endurskoðenda, Starfsmenn bókhaldskerfa fyrirtækjanna sem sérhæfa sig í notkun kerfanna, Starfsmenn tímaskráningarkerfanna og verkbókhaldskerfanna, Kjarasviðsstarfsmenn stéttafélaga, Starfsmenn launadeilda fyrirtækja og enn aðrir sem vilja kalla sig fagaðila í launaútreikningum
Í lok málstofunnar munum við taka saman punkta til að nota sem „verkfæri“ í starfi okkar.
Lágmarksþátttaka : 35 manns
Hámarksþátttaka : 110 manns
Námskeiðið gefur 3,0 endurmenntunarpunkta
Flest stettafélög styrkja félagsmenn sína til endurmenntunar
Skráningarlinkur: skráning (https://forms.office.com/e/T3gsTQ73WJ)
Síðasti skráningardagur er manudagurinn 15.sept 2025 um miðnætti, og í framhaldi verða reikningar sendir út.