Morgunverðarfundur 28. október 2026 á zoom – ÁhættuMat – lokið

Morgunverðarfundur miðvikudaginn 28. október 2026 kl. 9:00 á zoom. Fundurinn gefur 1,5 endurmenntunarpunkta.

Kristinn Guðnason frá ÁhættuMat kynnir.

ÁhættuMat er íslenskt vefkerfi sem hjálpar bókurum og bókhaldsstofum að halda utan um peningaþvættisvarnir. Í kerfinu er hægt að vinna áhættumat á eigin starfsemi, útbúa stefnuskjöl og undirrita þau rafrænt, ásamt því að framkvæma áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum. Markmiðið er að einfalda vinnuna og safna skjölum og upplýsingum á einn stað. Fyrir stofur sem nota þegar aðra þjónustu við áreiðanleikakannanir gæti hlutinn um áhættumat á eigin starfsemi og stefnuskjöl sérstaklega verið gagnlegur.