Morgunverðarfundur 6. mai 9-10, á zoom
Eva Dís frá Skreppa.is
ætlar að kynna okkur fyrir appinu þeirra.
Fjöldi fólks á Íslandi missir af tugum eða jafnvel hundruðum þúsunda króna á ári af því að það gleymir að fylla út akstursdagbók. Nú er komin rafræn lausn, Skreppa, sem heldur sjálfvirkt utan um aksturinn. Fólk sem keyrir einkabíl sinn í vinnunni á vegum vinnuveitanda á rétt á skattfrjálsum ökutækjastyrk en ferlið við að skrá aksturinn hefur verið svo tímafrekt og gamaldags að margir hafa einfaldlega sleppt því. Það er ástæðan fyrir því að Skreppa varð til. Markmiðið okkar er að færa akstursdagbókina úr hanskahólfinu og yfir í símann. Appið skráir aksturinn rafrænt og sjálfkrafa í bakgrunni síma notenda, sem þurfa einungis að flokka ferðirnar sem keyrðar eru og senda skýrslu rafrænt til vinnuveitanda. Það sem áður tók tíma og fyrirhöfn verður að nokkrum smellum í símanum.
Námskeiðið gefur 1.5 endurmenntunnarpunkta.
Morgunverðarfundur 6.mai 2026 kl. 9:00 Zoom – Fylltu út eyðublað (https://forms.cloud.microsoft/e/4Fxd3zps75)

